sunnudagur, 9. nóvember 2008

Rólegt 3xSuðurnes

0930. Skokkaði rólega út á Nes og fór 3 hringi kringum Suðurnes og svo heim aftur. Passaði mig á að ná 15.2km til þess að vikan færi upp í 100 km.

Hljóp alla daga vikunnar og tvisvar á dag bæði þriðjudag og fimmtudag. Mjög ánægður með vikuna. Stefni á að byrja á brekkusprettum í næstu viku.

2 ummæli:

Steinn Jóhannsson sagði...

Flott vika hjá þér. Miða við hversu vel gengur verður þú kominn í hörkuform um áramót og töluvert fyrr en í fyrra.

Biggi sagði...

Takk. Já, þetta gengur bara alveg eins og í sögu - enda þarf allt að ganga upp til að ná markmiðinu í París ;-)