Ég er farinn að finna vel fyrir álagi síðustu daga og vikna og ágætt að vita til þess að álagið minnkar í næstu viku. Við vorum dálítið tvístraðir hlaupafélagarnir í byrjun. Ég og Flóki hlupum á móti hvor öðrum og mættumst hjá Búllunni. Héldum síðan út á Ægisíðu og hittum á Helga við Fossvogskirkjugarð og hlupum hefbundinn Viktor. Jákvætt að þrátt fyrir að vera þreyttur í byrjun skilaði ég æfingunni ágætlega og fannst ég sterkari eftir því sem leið á hlaupið. Samtals 20km og meðaltempó ca 4:25.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli