Löng MP æfing á bretti. Þetta átti að verða lengsta MP æfingin í prógramminu (90' á MP+) en ég var ekki alveg með þetta í dag. Hljóp þó 20km á 74mín og er bara nokkuð sáttur við það. Mjög gott auðvitað að geta hangið á þessu svona lengi þrátt fyrir að vera frekar illa stemmdur og þreyttur eftir átök síðustu daga og vikna. Með örstuttri upphitun var æfingin 21km í heildina.
KR skokk. Var með byrjendurna í dag. Mjög fínt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli