Morgunhlaup. Ég og Flóki hlupum hefbundinn Neshring og ég bætti við Suðurgötuhringnum. Fínasta veður í morgun og líðan góð. [12km]
Samgönguhlaup úr vinnu með viðkomu í WC Kringlunni. Þar höfðum við Helgi mælt okkur mót og tókum nokkra létta spretti - 10x(1' @3:09mín/km; 30'' hvíld). Ágætt að leyfa löppunum að snúast aðeins og við pössuðum okkur á að vera ekkert að sprengja okkur þar sem aðaltempóæfing vikunnar er á morgun. Gott að fá 10' af góðum gæðum. Það á ekki að taka neitt úr löppunum en skilar betra skrefi. Hljóp svo heim. [9km]
1 ummæli:
Flottur Biggi. Greinilega ad keyra tetta vel í gang.
kv Freyr
Skrifa ummæli